Ert þú að flytja í Árborg?

 
Ráðhús og þjónustuskrifstofur
Staðsetning:
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Opnunartími:
mánudaga – föstudaga kl. 08:00-15:00
Sími: 480-1900     Fax: 480-1901      Netfang: radhus@arborg.is
Í Ráðhúsi er sameiginleg símsvörun fyrir fjármála- og stjórnsýslusvið, fjölskyldumiðstöð og framkvæmda- og veitusvið. Þjónustuver Árborgar veitir allar almennar upplýsingar um þjónustu og starfsemi bæjarins.


 
Þjónustumiðstöð framkvæmda- og veitunefndar
Staðsetning:
Austurvegi 67, 800 Selfoss
Opnunartími:  mánudaga – fimmtudaga frá kl. 08:00 - 15:00 og föstudaga frá kl. 08:00 -13:00
Sími: 480 1500  Fax: 480 1501

Starfsmaður í móttöku:
Elínborg Alda Baldvinsdóttir, móttökufulltrúi  elinborg@arborg.is


Flutningstilkynning
Tilkynna skal um flutninga í afgreiðslu Ráðhúss Árborgar eða þjónustuskrifstofu Árborgar Eyrarbakka innan viku frá flutningi, upplýsingum er komið til Hagstofu Íslands íbúaskrár.
Þar er einnig hægt að tilkynna breytingar á búsetu, nálgast öll eyðublöð, ganga frá umsóknum, nálgast samþykktir, fundargerðir og ýmsar upplýsingar um sveitarfélagið og rekstur þess.

Ætlar þú að byggja?

Skipulags- og byggingadeild,
Austurvegi 2, 800 Selfoss, veitir allar upplýsingar um lóðir og framkvæmdir.
Opnunartími:
Mánudaga til fimmtudaga frá 08:00-16:00 og föstudaga frá 08:00-15:00
Sími: 480 1900  Fax: 480 1921

Lausar lóðir í Árborg

Landupplýsingarvefur

Viltu kaupa húsnæði í Árborg?

Fasteignasala Lögmanna Suðurlands.
Austurvegi 3,  800 Selfoss      S: 480-2900
www.log.is

Fasteignasalan Árborgir ehf.
Austurvegi 38, 800 Selfossi.  S:482-4800
www.arborgir.is

Fasteignasalan Bakki
Sigtúnum, 800 Selfoss            S:482-4000
www.bakki.com


Hiti og rafmagn  
Selfossveitur  er sjálfstætt þjónustufyrirtæki á sviði orkuiðnaðar.   Fyrirtækið er í eigu Sveitarfélagsins Árborgar og annast öflun, dreifingu og sölu á heitu vatni til viðskiptavina sinna á Eyrarbakka, Selfossi, Stokkseyri, Sandvíkurhreppi og að Laugardælum í Hraungerðishreppi.
Staðsetning: Austurvegi 67, 800 Selfoss,
Opnunartími: mánudaga – fimmtudaga kl. 08:00–16:00 og föstudaga kl. 08:00-15:00
Sími: 480 1500  Fax: 480 1501

Sími
Þú getur flutt gamla númerið með þér hvert á land sem er.  Hins vegar þurfa þeir sem eru í fyrsta skipti að sækja um nýtt símanúmer að sækja um á þjónustustað Símans í Árborg hjá TRS Eyravegi 37 Síminn er 480 3300 og í þjónustuveri 800 7000.

Leikskólar í Árborg
Hér eru hagnýtar upplýsingar um leikskóla Árborgar ásamt helstu áherslum þeirra í leikskólastarfinu:

Grunnskólar
Vallaskóli tók til starfa 1.ágúst 2002 og varð til við sameiningu Sólvallaskóla og Sandvíkurskóla. Nemendur í skólanum eru um 750 og starfsmenn tæplega 160.

Starfsstöðvar:
Sandvík, sími 480 5800. Tölvupóstur vallaskoli@vallaskoli.is
Sólvellir, sími 480 5800. Tölvupóstur vallaskoli@vallsakoli.is
Skólavist Vallaskóla, sími 480-5815. Tölvupóstur skolavistun@vallaskoli.is 

Sunnulækjarskóli var settur í fyrsta sinn 23. ágúst 2004
Við skólann starfa 45 starfsmenn, nemendur við skólann eru rúmlega 261.
Skólastjóri er Birgir Edwald, birgir@sunnulaek.is
Aðstoðarskólastjóri er Þóra Björk Guðmundsdóttir, thora@sunnulaek.is

Skólavistun Sunnulækjarskól
Símanúmer skólavistunar eru:  480-5450 og 864 6450
Forstöðumaður skólavistunar er:  Ívar Örn Gíslason
Netfang: ivarorn@sunnulaek.is

Umsókn - Sunnulækjarskóla

Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri var stofnaður fyrir um 150 árum en þá aðeins á Eyrarbakka. 
Við skólann starfa 40 starfsmenn, nemendur við skólann eru 164
Stokkseyri: Sími 483 1263, fax 483 1269, sími í íþróttahúsi 483 1030 og í smíðahúsi 483 1293.
Eyrarbakki:  Sími 483 1141, fax 483 1541 og sími í íþróttahúsi 483 1415.
Skólavist í  Stjörnusteinum, sími 483-1608
Forstöðumaður er Ingibjörg Ársælsdóttir .

Umsókn - Stjörnusteinum

Fjölbrautaskóli Suðurlands
Sjá heimasíðu FSu
 

Bókasafn Árborgar á Selfossi
Staðsetning: Austurvegur 2, 800 Selfoss
Sími: 480 1980  Netfang: bokasafn@arborg.is
Mikið úrval bóka, blaða, tímarita, geisladiska, myndbanda og fleira.

Útibú
Bókasafn Stokkseyrar
Staðsetning: Stjörnusteinar 3,  825 Stokkseyri
Sími: 483 1261 Netfang: bokstokk@arborg.is

Bókasafn Umf. Eyrarbakka
Staðsetning: Túngata 40, 820 Eyrarbakki
Sími: 483 1165
Netfang: bokeyr@arborg.is  

Íþrótta- og tómstundastarf

Í Sveitarfélaginu Árborg er rekið mjög fjölbreytt og þróttmikið íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarf, hvort heldur sem er í íþróttamannvirkjum, félagsmiðstöð og grunnskólum sveitarfélagsins eða í hinum fjölmörgu íþrótta- og tómstundafélögum. Í Árborg er fjöldi félaga og samtaka einnig er félagsmiðstöð og  ungmennahús
Sjá íþróttaaðstaða í Árborg

Sjá heimasíðu Ungmennafélags Selfoss


Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Suðurlandi - SMFS
Svæðisskrifstofur starfa skv. lögum nr. 59/1992 um málefni fatlaðra.  Þær starfa í umboði félagsmálaráðuneytisins og eru ábyrgar gagnvart því í verkum sínum.  Hlutverk  og verkefni svæðisskrifstofa eru tilgreind í lögum og reglugerðum.
Svæðisskrifstofur veita þeim þjónustu og aðstoð sem eru andlega eða líkamlega fatlaðir og þarfnast sérstaks stuðnings af þeim sökum. Með fötlun er hér einkum átt við þroskahömlun, geðfötlun, hreyfihömlun og sjón- og heyrnarskerðingu. Fötlun getur einnig verið afleiðing af langvarandi veikindum, svo og slysum. Fjölskyldur fatlaðs fólks og þeir sem veita þeim þjónustu geta leitað til svæðisskrifstofa. Nánari upplýsingar um þjónustu svæðisskrifstofa er að finna á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins
http://www.felagsmalaraduneyti.is/malaflokkar/malefni-fatladra/
Hjá Svæðisskrifstofu Suðurlands starfa þroskaþjálfar, félagsráðgjafar og stuðningsfulltrúar auk fleiri starfsstétta.  Alls  starfa um 90 manns hjá skrifstofunni á 8 starfseiningum.  Einnig er skrifstofan með þjónustusamning við þrjú sambýli í sveit og við sveitarfélög um frekari liðveislu.
Svæðisskrifstofan er til húsa að Eyravegi 25 á Selfossi, s: 480-6900, netfang skrifstofa@smfs.is
Opið er frá kl. 8.30 -16 virka daga.

Heilbrigðisstofnunin Selfossi

Heilsugæslustöð Selfoss – Sjúkrahús Suðurlands
Heimilislækningar – læknisþjónusta – vaktþjónusta
Við Heilsugæslustöð Selfoss starfa 6 heilsugæslulæknar sem sinna hefðbundnum heimilislækningum og vaktþjónustu. Þar starfa einnig að meðaltali 7 hjúkrunarfræðingar sem sinna heimahjúkrun, ungbarnaeftirliti, skólaheilsugæslu og ýmiss konar hjúkrunarþjónustu á stöðinni, s.s. sáraskiptingum, blóðþrýstingsmælingum, ónæmisaðgerðum og lyfjagjöfum. Ljósmæður sjúkrahússins sjá um mæðravernd.

Sérfræðiþjónusta
Augnlækningar, barnalækningar, fæðinga- og kvensjúkdómalækningar, háls- nef- og eyrnalækningar og lyflækningar.



Prenta þessa síðu