Evrópudagur talþjálfunar 6. mars
Evrópudagur talþjálfunar er haldinn 6. mars ár hvert og er þema dagsins árið 2024 "Talmeinafræðingar í teymi".
Af þessu tilefni vilja talmeinafræðingar skólaþjónustu Árborgar vekja sérstaka athygli á störfum talmeinafræðinga sveitarfélagsins og þeirri víðtæki teymisvinnu sem fer fram bæði innan skólaþjónustu og í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins.
Talmeinafræðingar Skólaþjónustu Árborgar vinna í teymum með kennsluráðgjöfum og sálfræðingum skólaþjónustunnar, þeir sitja í lausnateymum leik- og grunnskóla og vinna með sérkennslustjórum, deildarstjórum stiga og stoðþjónustu sem og öðru fagfólki innan skólanna.
Í þessari teymisvinnu leggja talmeinafræðingar áherslu á allt það sem snýr að tali og máli með það að markmiði að stuðla að velferð allra nemenda í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins. Auk þess má nefna að talmeinafræðingar veita ráðgjöf og fræðslu til foreldra/forsjáraðila og starfsfólks skólanna.
Sem dæmi um verkefni talmeinafræðinga þá koma þeir að börnum með vanda sem tengist:
- Málþroska en þá eiga börn í erfiðleikum með; að skilja það sem sagt er við þau (málskilningur), að koma hugsunum sínum í orð (máltjáning) og þau nota og skilja fá orð (orðaforði)
- Framburði en þá eiga börn í erfiðleikum með framburð ákveðinna málhljóða, eins og /r/ og /s/.
- Hljóðkerfisvitund en þá eiga börn í vanda með ýmsa þætti hljóðkerfisvitundar, m.a. rím, klappa atkvæði, tengja hljóð saman í orð og greina hvaða hljóð eru í orðum. Hljóðkerfisvitund hefur sterka fylgni við lestur og nám seinna.
- Talflæði (stam)
- Rödd, til dæmis vegna langvarandi hæsis.
Fræðsluefni
Í tilefni dagsins hvetja talmeinafræðingar til þess að öll áhugasöm kynni sér fræðsluefni frá skólaþjónustu Árborgar.