Sumarfrístund í Árborg 2024
Ferðir, föndur ævintýri og upplifanir fyrir 6 til 9 ára börn í Árborg
Sumarfrístund hefst 10. júní og verður til 12. júlí. Starfsemin fer fram á hverju frístundaheimili fyrir sig eins og í vetrarfrístund
Sumarfrístund lokar í 4 vikur í sumar dagana 13. júlí til 12. ágúst.
Eftir sumarfrí hefst starfsemi frístundar aftur þann 12. ágúst og stendur til 21. ágúst.
Sumarfrístund verður opin frá kl. 9:00 - 16:15 alla mánudaga til fimmtudaga. Hægt er að greiða fyrir viðbótarstund frá kl. 8:00 - 9:00.
Á föstudögum lokar sumarfrístund kl. 14:00 vegna styttingu vinnuvikunnar og starfsmannafunda.
Fyrirkomulagið er þannig að einstaklingur skráir sig fyrir hverja viku
Það er einungis hægt að skrá á 5 daga námskeið með vistun allan daginn, eða 4 daga námskeið með vistun allan daginn í þeim vikum sem lögbundnir frídagar falla á.
Skráning á námskeið lokar fimmtudag á hádegi vikunni fyrir námskeið.
- 7 daga námskeið - kr. 18.000
- 5 daga námskeið - kr. 14.000
- 4 daga námskeið - kr. 12.000
- Viðbótarstund - kr. 2.700
Nánari upplýsingar
bjarkarbol@arborg.is | bifrost@arborg.is | holar@arborg.is | eldheimar@arborg.is | stjornusteinar@arborg.is