Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


1.10.2019

1. fundur Hverfisráð Selfoss

Hverfisráð Selfoss   1.fundur. 27.mars 2019. Til fundarins var boðað til að ræða möguleg verkefni ráðsins og næstu skref þess. Almenn umræða um Hverfisráðið var einnig rædd.  
  • Helgi Haraldsson útskýrir veru bæjarfulltrúa í Hverfisráði.
    • Nefndarmenn verða að vera skýrir varðandi fyrirspurnir til bæjarráðs.
    • Hafa fundargerðir skýrar með tillögu og ábendingum ef þess er þörf.
    • Hver og einn meðlimur í Hverfisráði Selfoss er heimilt leggja til viðfangsefni.
  • Grétar Guðmundsson bendir á að dagsetningar á tilkynningum frá Sveitarfélaginu sem birtast inn á arborg.is mættu vera betri.
    • Það stendur til úrbóta sem og heimasíða sveitarfélagsins.
  • Rætt var hvort lengja eigi viðveru í Hverfisráði í meira ein 1.ár.
  • Rætt var um hvort halda eigi íbúarfund.
    • Góður vettvangur fyrir íbúa að koma á framfæri til Hverfisráðs hugmyndum hvað má betur fara í bæjarfélaginu.
    • Vel tekið í hugmyndina og hún verður skoðuð nánar.
  • Rætt var um umgengi í kringum hesthúsin og hvort beina þurfi til Hestamannafélagins hvað mætti betur fara.
  • Rætt var um svæði fyrir atvinnubílstjóra til að geyma ökutæki sín svo bílstjórar þurfi ekki að leggja stórum ökutækjum í íbúðargötum, eða í vegköntum.
    • Mjölnismenn vilja byggja húsnæði og hafa stórt bílaplan á lóð Vegagerðinnar í Breiðumýri fyrir vörubifreiðar til nætur-og helgargeymslu.
  • Rætt var um sorpmál
    • Grenndargámar, gámasvæði og flokkun hjá fyrirtækjum í sveitarfélaginu.
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica