Vor í Árborg 2009 og 2010


Vor í Árborg 2010. „Allir saman nú"

Kallað eftir samstarfi,hugmyndum og tillögum frá íbúum.

Lista- og menningarnefnd lagði til, að Vor í Árborg  verði haldin daganna 13., - 16. maí nk. með aðaláherslu á helgina.  Lögð verði sérstök áhersla á þátttöku allrar fjölskyldunnar og þar verði „Gaman saman sem fjölskylda" fjölskylduleikurinn látinn spila stóra rullu og skipulagður sérstaklega með börn og ungmenni í huga.

Hér með óskum við eftir uppástungum, þátttöku og samstarfi við félög og samtök, einstaklinga og áhugahópa, fyrirtæki og stofnanir. Skipulag er á undirbúningsstigi og hvers kyns tillögur að dagskráratriðum eða hugmyndum um menningarviðburði eru vel þegnar.

Áhugasamir leggi inn hugmyndir og uppástundur og samstarfshugmyndir á netfangið vor@arborg.is eða hafi samband við Andrés Sigurvinsson, verkefnisstjóra íþrótta- forvarna og menningarmála, Fjölskyldumiðstöð Árborgar á netfangið andres@arborg.is og / eða Braga Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúa á netfangið bragi@arborg.is eða í síma 4801900.

Athuga að netfangið vor@arborg.is  er sérstaklega opnað fyrir Vor í Árborg 2010.

Andrés Sigurvinsson,
verkefnisstjóri íþrótta-forvarna- og menningarmála Árborgar

Vor í Árborg 2009


Prenta þessa síðu